image image image image
Vitnisburður Þorgeirs Hvers vegna valdi ég að fara í MCI: Ég hef mikinn áhuga á öllu því sem bætir mig sem persónu og það er megin ástæðan fyrir því afhverju ég er í MCI. Ég var forvitinn að vita hvað þessi skóli myndi gera fyrir mig. Ég hef prófað ýmislegt sem hefur byggt mig upp síðastliðinn 6 ár, og það sem stendur kannski upp úr eru 12 sporin, þjónusta og leitast að vera til staðar fyrir aðra.
Vitnisburður Katrínar Hvers vegna MCI? Ég er á öðru árinu mínu í MCI og ég fór í MCI því mér langaði að kynnast Guði meira, ég vissi í raun ekki mikið um þennan skóla en Guð kallaði mig í hann og þetta er án efa það besta sem hefur komið fyrir mig. Hér hef ég fengið að vaxa í Guði, fengið að reyna ýmislegt sem ég hélt að ég gæti ekki. Við förum í gengum bæði bóklegt og verklegt nám.
Vitnisburður Evu
Hvers vegna MCI?  .....Ástæðan fyrir því að við völdum MCI en ekki erlendan biblíuskóla er einfaldlega sú að okkur þykir mikilvægt að geta þjónað í kirkjunni okkar með skólanum. Það gerir það að verkum að eftir námið erum við vel tengd inn í starf kirkjunnar.
Orkan Í fyrra hófum við styrktarsöfnun fyrir trúboðsferð skólans til Kongó í Afríku með hjálp Orkunnar.  Það var mikil blessun og með þinni hjálp þá náðum við að safna um 400.000 kr fyrir Kongóferðinni.   í ár er ferðinni heitið til Goa á Indlandi.  Þar er stefnt á vakningasamkomur og hjálparstarf meðal fátækra barna. 

Hjálparstarf og Kristniboð

Á hverju ári fara nemendur og starfsmenn MCI dagskóla í hjálparstarfs- og/eða kristniboðsferð til útlanda. Hér fyrir neðan má sjá ferðasögu fyrir hverja ferð sem farin hefur verið:

Kongo
Albania
Bangladesh
Burkina08
Estonia
PAKISTAN07
Pakistan06
Paraguay
Burkina04

Fréttir og pistlar

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Vinir skólans

vinir_skolans

Vinir skólans er hópur fólks sem stendur á bak við skólann. Vinir skólans hafa stutt skólann með bæn, gjöfum, fjármagni og þjónustu. Við bjóðum alla nýja vini skólans velkomna.

Vinir skólans gegna veigamiklu hlutverki fyrir framtíð skólans. Með því að efla vini skólans fáum við tækifæri til að bæta starfsmannahald og kynningar á skólanum svo um munar. Vinir skólans gera okkur einnig kleift að halda áfram með hugsjónina okkar: að þjálfa upp unga einstaklinga sem þrá að þekkja Guð og gera hann þekktan.


Lesa meira


 

Kvöldskóli FHK Vor 2012

Nám í kvöldskóla á vorönn 2012 hefst miðvikudaginn 11. Janúar 2012. Þrjú námskeið verða í boði á vorönn:

BIB 103 Nýja Testamentið

GFR 103 Trúfræði

SIÐ 102 Að leysa vandamál lífsins

Sjá stundatöflu hér

Umsókn um kvöldskóla

HÉR getur þú sótt umsókn um nám í kvöldskóla FHK.

Umsókninni skal skilað til stjórnenda skólans. Senda má umsóknina með tölvupósti á netfangið erdna@mci.is eða senda umsóknina á skrifstofu skólans:

Fræðslumiðstöð Hvítasunnukirkjunnar
Völvufelli 11
111 Reykjavík