Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Að þekkja Guð og gera Hann þekktan

nemendur
Hvað vill Guð með mitt líf? Hvert stefnir líf mitt? Er biblían orð Guðs?


Þetta eru algengar spurningar sem allir spyrja sig einhvern tíman á lífsleiðinni. Hvað get ég gert? MCI er 9 mánaða skóli þar sem þú færð tíma til að leita Guðs og dvelja í návist hans, móta þinn eigin karakter, kynnast öðrum ungum einstaklingum á þínum aldri sem eru með sama hugarfari og þú og prófa ýmsa hluti sem þú hefur ekki einu sinni látið þig dreyma um að gera. Skólinn er fyrir ungt fólk á aldrinum 16-30 ára sem er tilbúið til að leggja upp í ferðalag lífs síns.

Markmið skólans
er að gefa ungu fólki tækifæri til að þroskast og eflast í trúnni, sem og að verða meðvitaðari um daglegt líf með Guði. Einnig mun nemandinn kynnast hinum ýmsu starfsvettvöngum kirkjunnar en þar er ávallt af nógu að taka. Bóklega námið er byggt upp á kennslubókum í Guðfræði sem eru í nokkrum þyngdarstigum og getur hver fyrir sig valið sitt þyngdarþrep. Mikið er lagt upp úr verklega hluta skólans og að hver og einn fái að reyna sem flest, allt frá því að sópa gólf upp í það að prédika Guðs orð. Á hverju ári er farin a.m.k. ein trúboðsferð til fjarlægs lands þar sem nemandinn fær að kynnast ólíkri menning og lifnaðarháttum sem og sjá hvernig kristniboð fer fram í því landi.


Kvöldskólinn hefst þriðjudaginn 14 & miðvikudaginn 15 september 2010

Enn er hægt að skrá sig á námskeiðin með því að hringja í síma 897-5878 eða senda okkur tölvupóst erdna@mci.is
Hvert námskeið kostar 13.000 og hægt er að sækja um endurgreiðslu á námskeiðskostnaðinum hjá stéttarfélögum.

Sjá kynningarglærur hér

FlatoyÁ hverju ári fer MCI biblíuskólinn í trúboðsferð eða hjálparstarf. Trúboðsferðin 2010 verður frábrugðin að því leyti að nú ætlum við að sameina bæði trúboðið og hjálpina. Við munum slást í för með Helga Flatoy trúboða frá Sarons dal World mission og munum vera með samkomuherferð á sama tíma og við tökum þátt í uppbygginu á svæðinu fyrir börnin.

 

Trúboðsferð MCI verður til Congo 2010
Í samstarfi við Dina og Sarons dal


Fyrir þá sem vilja styrkja skólann í Trúboðsferðina Þá er söfnunarreikningur skólans 301 - 26 - 471089
Kt : 471088-2429

 

Smelltu á myndina til þess að sjá Kynningarmyndband á Ensku

Einnig er myndband á Norsku á YouTube rás : Smelltu Hér

Það helsta

TV


Smelltu á myndina


Fáðu sent rafrænt fréttabréf skólans

SKRÁ

 

Umsóknarform

Flickr
Gallery
 
Mad Mimi Email Marketing 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117