Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Burkina Faso trúboðsferð

Þann 29 Febrúar sl. fór góður hópur á vegum MCI Biblíuskólans áleiðis til Vestur Afríku til lands sem heitir Burkina Faso, eða land heiðarlega mannsins. Viðkoma var í Frakklandi í 2 daga áður en haldið var til Burkona Faso og fengu nemendur og aðrir að skoða París.

Tíminn notaður vel af nemendum til þess að skoða sögulegar minjar, það var farið á Loor safnið, og sigurboginn skoðaður sem og Eifel turninn. Þetta var góður tími, einnig braut þetta upp ferðalagið, því flugið frá París til Ougadougu tekur 7 tíma með viðkomu í Níger.

Tveir af ferðafélögunum komu reyndar daginn eftir, það voru þeir Hjalti Glúmsson forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akranesi og Biggi frá Akranesi.


Þann 2 Mars lögðum við af stað til Afríku, Það var góður andi í hópnum og allir voru mjög spenntir.    Þegar við lentum í Waga eins og borgin er kölluð, þá tók hún á móti okkur með um 35 stiga hita, en sólin var um það bil að setjast og var hitinn því ekkert yfirþyrmandi, viðbrigðin voru samt töluverð.. Við vorum einn dag í borginni á meðan við biðum eftir Norska trúboðanum Harald Mydland, sem kannski margir kannast við en hann var um árabil ritstjóri Troens Bevis blaðsins í Noregi, og þar af leiðandi margreyndur trúboði sem hefur ferðast mikið með Aril Edvardsen bæði í Afríku Indlandi og Pakistan.

4. mars var förinni svo heitið til Boromo sem er um 10.000 manna bær, en okkur var svo tjáð það þegar við komum á staðinn að börn undir 16 ára aldri eru ekki talinn með, og miðað við það sem við sáum þá eru í það minnsta 15.000. manns sem búa þarna.

Ég var búin að fá að vita að þegar við kæmum myndum við gista á Hóteli staðarins, það sem beið okkar var ekki beint það sem við áttum von á, allavega hefði staðurinn verið kallaður eitthvað annað en hótel í Evrópu. Þetta voru lítil hringlaga hús með stráþaki. Aðeins 3 þeirra voru með loftkælingu en hin voru með viftu og það voru bara 1 manna herbergi þannig að hver kofi tók um 2 einstaklinga, hálfur kofi á mann! Herbergin voru með rúmum með einhverskonar svampdýnu og öll áttu þau það sameiginlegt að það var spítuplanki sem stakkst uppí bakið á manni þegar maður svaf á þeim, þeir sem fengu gestarúm að hætti rúmfatalagersins voru á bestu rúmunum J   Það er gaman að því.

Strax um kvöldið héldum við fyrstu samkomuna,   Það var mikil tónlist, ekki alveg eins og maður á að venjast, en einstaklega skemtileg engu að síður. Maður hefði reyndar notið hennar mun betur ef þeir hefðu ekki trekkt hljóðkerfið í 110% styrk, með þeim afleiðingum að allt bjagaði og var eiginlega orðið pirrandi áður en langt um leið en hugmynd að góðu hljóði er aðeins öðruvísi en í okkar heimsálfu.

En Guð var að starfa og allir voru mjög glaðir.   Fyrstur á svið steig bæjarstjóri Boromo, hann blessaði samkomuherferðina og talaði um það hvað svona samkomur væru mikilvægar og hvað boðskapur Jesú Krists væri mikilvægur fyrir Boromo og fyrir Burkina Faso. Á eftir honum kom kona sem er yfirmaður dóm og lögvaldsins á staðnum. Hún var nánast farin að predika og hvatti alla viðstadda að hlusta vel á þann boðskap sem yrði borin fram á næstu dögum.   Mjög jákvæð byrjun það. Síðan var smá tónlist. Þá steig ég á svið og kynnti hópinn og blessaði Burkina og Boromo, Lilja og Óskar vitnuðu svo áður en að Harald Mydland predikaði Guðs orð. Á samkomunni voru eitthvað á milli 4 - 5 þúsund og mörg hundruð komu fram til þess að meðtaka frelsi og lækningu.

Það er samt eitt atvik sem stendur uppúr þetta kvöld. Þegar búið var að biðja fyrir þeim sem voru sjúkir þá urðu við vitna að rosalegu kraftaverki. Eldri kona sem sat á teppi í fjöldanum sem var blind og lömuð fyrir neðan mitti stóð upp og byrjaði að ganga um. Við vissum að sjálfsögðu á þessum tímapunkti ekki hvað var að gerast, fólkið sem var á samkomunni hópaðist í kringum hana og það má segja að allt hafi farið í uppnám. Það var ekki fyrr en þessi kona hafði náð að ganga uppá svið og gefa vitnisburð sinn, við mikin fögnuð viðstaddra, að okkur var ljóst hvað hafði gerst. Guð hafði læknað hana algerlega. Þetta er atvik sem seint mun fara úr okkar minni.   Guð er góður.

Það má segja að hvert kvöld hafi verið ný upplifun, við sáum fleiri og fleiri koma fram til frelsis og á hverju kvöldi fengum við að upplifa hungrið sem fólkið hafði eftir því að kynnast Guði og einnig fengum við að sjá mörg kraftaverk.

Það sem stendur uppúr eftir þessa ferð er í fyrsta lagi sálnafrelsi margra en yfir 1200 manns gáfu líf sín Jesú. Annað sem stendur uppúr er að fjölmargar kirkjudeildir virkilega stóðu saman að þessu átaki. Síðansta daginn okkar þarna í Boromo áttum við smá stund með forstöðumönnunum þar sem þeir lýstu þakklæti sýnu yfir þessu framtaki og sögðu okkur að í mörg ár hefðu þeir verið að biðja Guð um möguleikann á því að halda slíkar samkomur og ná til fjöldans og það sem við hefðu gert þarna á fimm dögum hefði verið algjört bænasvar.   Þeir voru mjög þakklátir og tilbúnir til þess að halda áfram því verki hófst.

Samhliða samkomuherferðinni vorum við með forstöðumanna og leiðtoga ráðstefnu á morgnanna. Þetta var stundum erfitt, því svona uppúr kl. 11 á morgnanna hitnaði allverulega í kirkjunni þar sem ráðstefnan var haldin, og þorpsbúar komu með fólk sem vildu fá fyrirbæn þannig að mikið var um að við færum út í brennheita sólina til þess að biðja fyrir fólki. Samt var ráðstefnan að mörgu leiti hluti af því sameiningaverki sem þarna átti sér stað, því forstöðumenn og leiðtogar þessara kirkna mættu á svæðið, bæði menn og konur og hlýddu á vitnisburði og kennslur og borðuðu svo hádegismat saman. Allir voru mjög uppörfaðir og þakklátir eftir þessar stundir, þó svo að við Íslendingarnir væru stundum eins og ný bakað hverarbrauð því hitinn fór oft vel yfir 40 gráður.

Okkur langar til þess að þakka öllum þeim fjölmörgu sem studdu okkur í þessu átaki bæði með tíma sínum og fjármunum, við erum afar þakklát að hafa fengið að vera þáttakendur í þessu verki. Ekki síst eru innfæddir þakklátir fyrir ykkar framlag.

Guð blessi ykkur og launi ríkulega

Kveðja G.Ólafur Zophoniasson, MCI nemendur og gestir ferðarinnar.

 

 
     

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117