Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

ICI

Í MCI er notað ICI námsefni úr flokknum Kristileg þjónusta, sem er ætlað að þjálfa verkamenn í söfnuðunum. Kennt er um kristilegan þroska, grundvallarkenningar kristindómsins, bækur Biblíunnar og starfið í söfnuðunum. Allt miðar að því "að fullkomna hina heilögu og láta þeim þjónustu í té, líkama Krists til uppbyggingar" (Efesus 4:12).

ICI er viðurkennt Biblíunámsefni sem er notað víða um heim. Hægt er að fá ICI efni á háskólastigi og taka BA próf í Guðfræði í tengslum við MCI eða í fjarnámi.

Veturinn 2005 - 2006 þá fengu 2 árs nemendur tækifæri á því að vinna í Guðfræðinámi á Háskólastigi. Lilja Óskarsdóttir kristniboði á veg og vanda að slíkt nám er í boði hér á íslandi sem og Lindin og Mike Fitzgerald, en í vetur þá fór hún af stað með Guðfræðiskóla á háskólastigi, sem fjallað er hér um á sér link.

 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117