Vinir skólans gegna veigamiklu hlutverki fyrir framtíð skólans. Með því að efla vini skólans fáum við tækifæri til að bæta starfsmannahald og kynningar á skólanum svo um munar og gerir okkur einnig kleift að halda áfram með hugsjónina okkar; að þjálfa upp unga einstaklinga sem þrá að þekkja Guð og gera hann þekktan.
Skólinn hefur eignast marga stuðningsaðila og yfir 80 manns eru á póstlista skólans, markmið okkar fyrir næsta ár er að safna 200 styrktaraðilum. Í Október 2007 þá réðum við til starfa Erdnu Varðardóttur og hennar aðalstarf er að vera kennslustjóri sem og ýmislegt annað sem hún tekur sér fyrir hendur á vegum skólans.
Skólagjöldin hafa aðeins náð að greiða niður fyrir heimavistina og smá styrk til þeirra sem hafa gefið hvað mest til starfsins sem og ferðalög innlands og ferðakostnað erlendra sem innlendra kennara.
Fyrir þá sem myndu vilja gerast vinir skólans þá eru margar leiðir færar.
Nr: 1 Það er að láta þjónustulínuna í bankanum þínum sjá um að millifæra þá upphæð sem þú myndir vilja styrkja skólann með. Náðu í beiðni fyrir það hér hægra meginn.
Nr. 2 Fyrir þá sem nota heimabanka þá er hægt að setja upp greiðslu sem á sér stað sjálfvirkt í hverjum mánuði,
Nr 3 Fá sent Gíróseðil frá skólanum.
Nr 4 Greiða með Kreditkorti mánaðarlega þá er best að hafa samband með því að senda tölvupóst á mci@mci.is með upplýsingar um nafn og símanúmer og við verðum í sambandi við fyrsta tækifæri. |