Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Hvað gerum við?



Í skólanum
koma saman einstaklingar sem hafa svipað hjarta og þrá fyrir líf sitt; að þekkja Guð og gera hann þekktan. Námið skiptist upp í að vera bóklegt fyrir hádegi þar sem nemendur læra minnisvers og úr ICI-námsbókum sem eru kennslubækur í Guðfræði. Eftir hádegi er verklegt nám og felst það í að undirbúa samkomur, tónleika, kennslur, ferðalög eða hvað sem okkur dettur í hug að gera. Það má segja að námið sé afar fjölbreytt og getur hver vika verið ólík.

Nemendur búa á heimavist og er kynjaskipt í herbergjum og er það hluti af náminu að búa saman í svokallaðri "kommúnu" þar sem persóna fólks slípast hvergi betur en einmitt í samskiptum við aðra.

 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117