Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Hvernig virkar skólinn?



Markmið skólans er að gefa ungu fólki tækifæri á að þroska og efla trúarvitund, og læra að starfa í umhverfi kirkjunnar. Það eru mörg hlutverk í kirkjunni en aldrei nóg af starfskröftum. Námið er byggt upp á vandaðri Guðfræðikennslu þar sem nemendur velja sér það stig bóknáms sem hentar þeim en hægt er að kynna sér það hér á síðunni. Mikið er lagt upp úr verklegri þjálfun og að nemendur fá að reyna sig á sem flestum sviðum lífsins, sem og að fara í eina trúboðsferð til fjarlægs lands þar sem einstaklingar kynnast öðrum menningarheimi og lífsmáta

1. ár Að finna það hver Drottinn er í þínu lífi

- Almennt grunnnám
- Karaktermótun
- Sjálfsögun
- Almenn Biblíuþekking
- Kynnast Jesú í gegnum persónulegt bænalíf, lestur í Orðinu og vinna á akri Drottins


2. ár Dýpkaðu þekkinguna á Guði í lífi þínu

- Að dýpka þekkingu sína á Orðinu
- A ð taka virkari þátt í starfsemi skólans og við þá þjónustu sem Drottinn hefur kallað viðkomandi einstakling í

3. ár Aðeins fyrir nemendur sem boðið er að taka 3.ár

- Verða starfsmenn skólans "interns"
- Þurfa að miðla þeirri þekkingu sem þeir hafa öðlast til nemenda á fyrri árum
- Þriðja árið er frítt fyrir nemandann

 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117