Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Að fara alla leið með Guði allt til enda.

í 9 kafla korintubréfsins þá notar Páll þessi orð
Vitið þið ekki að þeir sem keppa á íþróttavelli hlaupa að sönnu allir en einn fær sigurlaunin? Hlaupið þannig að þið fáið sigurlaun. Sérhver sem tekur þátt í kappleikjum leggur hart að sér. Þeir sem keppa gera það til þess að hljóta forgengilegan sigursveig en við óforgengilegan. Þess vegna hleyp ég ekki stefnulaust. Ég berst eins og hnefaleikamaður sem engin vindhögg slær.

Markmið skólans
er að gefa fólki tækifæri til að þroskast og eflast í trúnni og að verða meðvitaðari um daglegt líf með Guði.

Margir hlaupa stefnulaust í dag og það er þrá okkar að sem flestir trúaðir öðlist skýra mynd af því sem þeir trúa á og hvert þeir stefna í lífinu. Sem trúaðir einstaklingar er fyrir öllu að gefist ekki upp á miðri leið heldur gangi trúargönguna allt til enda.

Kynningarkvöld fyrir Haustönn

Kynningarfundur fyrir kvöldskólann er miðvikudagskvöldið 1.september, Mikill áhugi er á kvöldskólanum og viljum við því hvetja sem flesta að kynna sér skólann og námsefnið hér á síðunni. Haustönnin var frábær tími og voru allir nemendur mjög ánægðir og getum fengið að sjá 2 vitnisburði af samkomu hér á síðunni.

3 bækur verða á haustönn - Christian Maturity (Andlegur Vöxtur) ,Spiritual Gifts (Andlegar gjafir), Solving lifes problem (Að leysa lífsins vandamál) en hægt er að lesa um þær hér á síðunni. Einnig höfum við bætt við aukanámskeiðum sem verða í sambandi við Christian Maturity, um er að ræða námskeið í gjöfunum með Ruth og Guðjóni. Erdna Varðardóttir mun kenna " Andlegar gjafir" og Ester K, Jacobsen mun kenna "Að leysa lífsins vandamál".

Mikill áhugi er á þessu námi og verða því aðeins þeir fyrstu sem skrá sig sem komast að, en hámarksfjöldi nemenda miðast við 20 manns á hvert fag. Til þess að fá meiri upplýsingar þá getur þú hringt í síma skólans og rætt við okkur númerið okkar er 897-5878 - og svo getur þú nálgast umsóknina fyrir kvöldskólann hér á síðunni

Fyrirkomulag

Skólinn verður starfræktur með svipuðum hætti og almennt kvöldnám. Hvert fag verður kennt 1 sinni í viku í eina önn í senn. Allir nemendur munu taka próf í hverjum áfanga fyrir sig og að lokum hljóta alþjóðlega viðurkenningu.

Námið er í 3 stigum - Þjónustu lína, leiðtogalína, og pastoralína

Kennarar á vorönn verða G.Ólafur Zophoníasson, Ruth Guðmundsdóttir, Erdna Varðardóttir, Anna Jóna Kristjánsdóttir, Daníel Steingrímsson.

 

 

 

Það helsta

Vertu með í
Styrktarfélagi
Vinir skólans


Smelltu á myndina


Fáðu sent rafrænt fréttabréf skólans skráðu netfangið þitt hér í dálkinn.
 

Umsóknarform

Flickr
 Ljósmynda Gallery

 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117