Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Þjónustubraut

Er fyrsti áfangi af þremur og er hugsaður fyrir þá einstaklinga sem eru í eða langar að vera í þjónustu innan kirkjunnar hvort sem það eru þáttakendur í lofgjörð, tónlist, barna og unglingastarfi, fyrirbæn, tæknivinnu eða annari leikmannaþjónustu. Ekki er hægt að fara á leiðtogabraut nema klára þjónustubraut fyrst. Biblíunám annarstaðar verður metið auk starfsreynslu og þekkingar

Bók 1 - Andlegur Vöxtur (Christian maturity)
Námsefni fer yfir það hvað það er að vera andlega þroskaður og hvernig maður getur öðlast meiri þroska í Guði. Annað námsefni sem einnig verður notað er m.a. námskeiðið um gjafirnar með Ruth Guðmundsdóttur og Normal Christan birth með David Pawson
námsbókin er eingöngu á ensku

Bók 2 - Ríkið, mátturinn & dýrðin (The Kingdom, The Power & The Glory)
Yfirlit yfir Nýja Testamentið. Samhliða þessari bók er allt nýja testamentið lesið. Aðar bækur og DVD kennslur verða einnig skoðaðar í þessum áfanga til að dýpka skilning nemenda.
Ath þessi bók er á Íslensku en mikið af aukaefni er á ensku.

Bók 3 - Hornsteinn sannleikans (Cornerstones of Truth)
Námskeiðið byggir á aðferðum kerfisbundinnar guðfræði. Með kerfisbundinni guðfræði er átt við að ákveðið efnisatriði er skoðað til hlítar, og rannsakað hvað Biblían segir um það. Í námskeiðinu verða skoðuð mikilvæg efnisatriði sem tengjast grundvallarkennungum kristninnar. Meðal annars verðu fjallað um eðli og einkenni Guðs, þrenninguna, engla og illa anda, tilgang mannkynsins, heilagan anda, sköpunina, syndafallið, endurlausnaráætlun Guðs, ritninguna, kirkjuna og framtíðina.
Þessi bók er á ensku

Bók 4 - Kirkja Krists í þjónustu (The Crhistian Church in ministry)
Hvert er hlutverk kirkjunnar í samfélaginu? Hvert er mitt hlutverk í kirkjunni? Í þessum áfanga er leitð svara við þessu og mörgum öðrum spurningum um kirkjuna i dag.

Bók 5 - Andlegar gjafir (Spiritual Gifts)
Hverjar eru andlegu gjafirnar sem Guð hefur sett í kirkjuna? Hvernig virka þær í dag?Hvað er fimmfalda þjónustan? Eru þær fyrir mig í dag? Geta allir eignast andlegar gjafir?
Andlegar gjafir er mjög mikilvægur þáttur í lífi kristinna manna og í kirkjunni og þessi áfangi mun fara ítarlega í gegnum þessa hluti.

Bók 6 - Hvernig leysum við vandamál lífsins? (Solving lifes problem)
Þegar maður er í andlegri þjónustu eru mörg vandamál sem koma upp. Hvernig vinnur maður úr þeim? Samskipti við annað fólk og lífshamingja eru atriði sem snerta alla sem ganga um á þessari jörð. Í þessum áfanga verður tekið á mörgum af algengustu málunum sem upp geta komið í samskiptum og þjónustu, hvernig við vinnum úr þeim og hvernig við miðlum þeirri þekkingu áfram.

Það helsta

Vertu með í
Styrktarfélagi
Vinir skólans


Smelltu á myndina


Fáðu sent rafrænt fréttabréf skólans skráðu netfangið þitt hér í dálkinn.
 

Umsóknarform

Flickr
 Ljósmynda Gallery

 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117