Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Upphaf skólans á Íslandi



          Flestir kristnir einstaklingar hugsa á einhverjum tímapunkti að það hlýtur að vera eitthvað meira við kristið líf heldur en að bara mæta í kirkju. Jóhannes Hinriksson og G. Ólafur Zophoníasson vissu það og þeir vildu koma með svarið við þessari spurningu hingað til Íslands. Eftir að Rockford Masters Commission hafði heimsótt kirkjurnar okkar árið 2003 kviknaði hugsjónin í hjörtum þessara ungu brautryðjenda og þeir fóru til Kaupmannahafnar ásamt forstöðumanni Fíladelfíu Verði Leví Traustasyni, þar sem nýlega hafði verið stofnsettur fyrsti Masters Commission skóli í evrópu. Þeir hrifust af því hve vel skólinn virkaði á Evrópskum grundvelli og ræddu við forstöðumann sinn og ákveðið var að byrja með þennan skóla hér á Íslandi.

            Haustið 2003 hófst fyrsti vetur skólans og voru 6 nemendur skráðir á 1.ár. Allt gekk vel og lærðu nemendurnir mikið á þessum vetri, uxu og þroskuðust. Fór hópurinn í kristniboðsferð til Burkina Faso í V-Afríku. 5 nemendur útskrifuðust úr skólanum vorið 2004 eftir langa og lærdómsríka níu mánuði.

            Annað ár skólans gekk í garð með ekki alveg eins marga nemendur eða 5 talsins, þar af einn 2.árs nemanda. Ákveðið var að stytta skólaárið úr 9 mánuðum í 7,5 mánuð. Segja má að hvert ár dragi keim sinn af nemendunum og sýndi það sig og sannaði á þessum tveimur árum. Fyrra árið einkenndist af kraftmiklum einstaklingum sem þráðu að lofa Guð með verkum sínum á meðan seinna árið þráði að lofa Drottin með bæn, beiðni og þakkargjörð. Þennan vetur var hins vegar farið í vinnuferð til Paraguay og var byggð upp ein og hálf kirkja. Allir 5 nemendurnir voru útskrifaðir í byrjun júní.

            Þriðja árið flutti skólinn í nýtt húsnæði, út úr aðstöðu kirkjubyggingarinnar í Hátúni og upp í húsnæði hennar við Völvufell 11, Breiðholti. En þar hafði verið starfrækt útibú kirkjunnar með öflugu barnastarfi á árum áður. Þegar sú starfsemi færðist niður í Hátúnið tók lögreglan húsnæðið á leigu fram til þessa tíma. Nemendur þessa skólaárs voru heldur fáir eða þrír talsins. Má því segja að þetta hafi verið rólegasta skólaárið og það frábrugðnasta hinum með tveimur 2. árs nemum og aðeins einum 1. árs nema. Ákveðið var að fara til Pakistan í trúboðsferð og var sú ferð farin í byrjun maí, eða rétt fyrir útskriftina. Allir þrír nemendurnir útskrifuðust af þessu þriðja starfsári skólans.

            Haustið 2006 varð algjör sprengja í nemendafjölda skólans. Við upphaf annarinnar voru alls 14 nemendur og má segja að þetta ár hafi verið afar mótandi fyrir skólann. Fjölbreytileiki þess að hafa svona ólíku einstaklinga samankomna í þessu litla húsi og þar sem hópurinn var svona stór var hægt að afkasta meiru og koma við á fleiri stöðum í einu. Ákveðið var að fara aftur til Pakistan og fóru 16 einstaklingar þangað út. Einnig voru haldin mót farið í trúboðsferð til Eistlands, og við heimsóttum Southport Masters þar sem evrópuráðstefnan var haldin þar. Miklar breytingar voru á starfsliði, og gerðist það að á miðri önn að þurftum að finna nýja umsjónarmenn heimavistar, álagið var gríðarlega mikið á þessa fáu starfsmenn skólans, en með Guðs hjálp þá blessaðist þetta allt saman og trúboðsferðin til Pakistan var gríðarlega árangusrík, meira en 5000 manns gáfu líf sitt Jesú og margar kirkjur voru stofnaðar í kjölfarið til þess að halda utan um allan þennan hóp. Einnig söfnuðum við meiri peningum handa börnunum í Samundri, en þegar við komum aftur í þorpið þá hafði skólinn risið, en það átti enn eftir að byggja við húsið og vinna í nokkrum smáatriðum til þess að skólastofurnar yrðu að því húsnæði sem hentaði undir starfsemina.

            Haustið 2007 hófst nýr kafli í sögu skólans, 6 nemendur kláruðu skólann að þessu sinni, 4 á fyrsta ári og 2 á öðru ári. Þetta ár einkenndist af miklum áskorunum og krafti Heilags Anda og var samheldnin mikil í hópnum. Margar ferðir voru farnar bæði innanlands sem utan. Stykkishólmur og Akranes urðu fyrir valinu sem loka trúboðsferð, en einnig fórum við til Svíþjóðar og þjónuðum þar í nýstofnuðum kirkjum ásamt því að fá kennslu frá Go out Mission vinum okkar. Hjalti Þór sem var annars árs nemi fór svo í kjölfar Svíþjóðarferðarinnar til Senegal og tók þátt í trúboðsátaki þar sem margir komust til trúar og fengu lækningu til anda, sálar og líkama. Einnig fór skólinn allur í heild sinni til Burkina Faso í Vestur-Afríku í samvinnu við Harald Mydland, trúboða frá Noregi. Þar var haldin samkomuherferð í bænum Boromo. Í fyrsta sinn í sögunni þá tóku allar kirkjurnar á staðnum saman höndum og stóðu að þessu átaki með okkur. Mikil þáttaka og almenn ánægja var með framtakið og komu hinir ýmsu framármenn á samkomurnar og tóku þátt. Um 1200 manns gáfu líf sitt Jesú og fjöldi líkamlegra lækninga átti sér stað. Á hverju ári er haldin Evrópuráðstefna Masters Commission þar sem allir MC skólar í Evrópu hittast og eiga samfélag og tengjast vinaböndum. Í ár urðum við þess heiður aðnjótandi að sjá um ráðstefnuna. Allt gekk vonum framar og voru þátttakendur mjög ánægðir í lok ráðstefnunnar, enda var það fríður hópur MC vina á Íslandi sem unnu kröftugt og gott starf til þess að gera allt eins og best var á kosið. Þegar árið er tekið saman þá erum við afar þakklát fyrir allt það sem við fengum að sjá, reyna og upplifa, og það er trú okkar að hver og einn mun fara ríkari frá þessu ári á leið sinni í gegnum lífið.

             Haustið 2008 er sjötta starfsár skólans og má segja að árið hafi farið vel af stað með 10 nemendur mætta til leiks. Hópurinn samanstendur af ólíkum einstaklingum úr öllum áttum en við væntum mikil á þessu ári. Stefnan hefur verið tekin á trúboðsferðir vítt og breitt. Svíþjóð, og Bangladesh eru meðal þeirra landa sem við munum heimsækja í ár, ásamt því að fara á evrópuráðstefnuna í Frakklandi að þessu sinni.

 

 

 

 

 

 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117