| |
1984:
Fyrsti Masters Commission biblíuskólinn byrjar í Phoenix Arizona. Nemendur helguðu Guði eitt ár af lífi sínu til að læra biblíuvers utanbókar, rannsaka ritninguna og þjóna. Eitt ár tileinkað Guði án utanaðkomandi áreita, algjörlega gefin Kristi. Síðan þá hefur Guð verið að blessa Masters Commission og gefið tækifæri til margföldunar í kirkjum í Ameríku og víðar um heiminn.
1995:
MCIN, Masters commission international network, er stofnað. Það er net af Masters Commission biblíuskólum sem deila sömu þrá og hjarta fyrir karakter, heiðri og lærisveinaþjálfun. Ef Masters Commission skóli er viðurkenndur af mcin, þá fyllir hann upp í kröfur upprunalegu hugsjónarinnar og getur staðið undir nafni að vera Masters Commission.
2001:
Fyrsti Masters Commission biblíuskólinn stofnaður í Evrópu. Það voru Danir sem byrjuðu með Masters Commission í kaupmannahöfn og síðan þá hafa yfir 10 nýir Masters Commission biblíuskólar verið opnaðir víðsvegar um Evrópu og von á mörgum fleirum. Guð er byrjaður að þjálfa upp nýja kynslóð af leiðtogum og trúboðum í heimsálfunni sem aldrei fyrr.
2004:
Sameinuð Evrópa! Allavegana í Masters Commission. MCI, masters commission europe, er stofnað í sama tilgangi og MCIN. Nokkrir skólastjórar og leiðtogar tóku þátt í þessum sögufræga fundi þegar fyrsta netið (MCE) var stofnað. MCE varðveitir sömu gildin og sama hjartað í Evrópu og var í fyrsta skólanum í Phoenix árið 1984..
|
|
|
|