| |
Umsjónamaður heimavistar |
Anna Jóna Kristjánsdóttir stundar nám í sálfræði til BA prófs og er þar á þriðja ári.
Anna Jóna kynntist Jesú árið 2001 í Vestmannaeyjum, þar sem hún ólst upp. Haustið 2000 varð hún viðriðin unglingastarf í Vestmannaeyjum og í Febrúar árið 2001 tók hún ákvörðun um að fylgja Jesú heilshugar. Hún fluttist fljótlega til Reykjavíkur og sækir Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu. Haustið 2003 markaði ný tímamót í hennar lífi þegar hún ákvað að fara í Biblíuskólann MCI Síðan þá hefur hún haft mikið hjarta fyrir starfi skólans.
Samhliða námi hefur Anna Jóna gegnt hinum ýmsu störfum, eins og að afgreiða í verslunum, sendast með póst, þjóna og vinna í banka.
Hún hefur tekið þátt í ýmsu kristnu starfi, eins og bænastarfi, barnastarfi, unglingastarfi, Ný kynslóð skólastarfi og heimahópastarfi.
|
Aðstoðarmaður heimavistar |
Eydís Berglind Baldvinsdóttir er 3 árs nemi í MCI
Ég verð að segja að ég fann fyrst fyrir nærveru Guðs 15. maí 2007, þá var ég í meðferð á Hlaðgerðakoti. Ég vissi ekkert hvað var að gerast en ég hélt áfram að leita af þessari vellíðan sem Guð gaf mér þennan dag og ég mætti á samkomur í Samhjálp og Fíladelfíu. Ég tók skírn 12. ágúst 2007, helgina eftir Kotmót en þar fylltist ég krafti Heilags Anda og ákvað að ég vildi þjóna Guði allt mitt líf og vildi kynnast honum meira. Ég tók ákvörðun um að fara í Biblíuskólann og hef núna lokið 2 ár. Það hefur allt breyst á þessum 2 árum. Ég hef öðlast frelsi og sanna hamingju sem ég hélt að væri ekki til. Það er ekkert annað sem ég vil gera en að ganga í Guðs vilja því reynslan mín hefur sýnt það að Guðs vilji er það besta fyrir okkur og í þessum vilja eru engar áhyggjur. Ég veit ekki alveg hvert ég stefni en ég finn að Guð er að undirbúa mig fyrir eitthvað stórkostlegt, ég trúi að Guð mun sýna mér á þessu 3ja ári hvert framhaldið verður með mitt líf.
|
|
|
|