Biblíu & þjálfunarskóli Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
 

Skólastjóri

G.Ólafur Zophoniasson

G. Ólafur Zophoniasson er kvæntur Erdnu Varðardóttir og eiga þau saman þrjú frábær börn sem heita Ester Sara, Davíð Leví og Eva Margret.
Ólafur hefur lokið 2 árum í viðskiptafræði frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og einu ári í grunndeild rafiðnaðar í Fjölbrautarskólanumí Breiðholti. Þau hjónin voru sama eitt ár í Biblíuskóla Troens Bevis í Noregi. Ólafur hefur starfað við ýmislegt um æfina m.a. hjá Akureyrabæ um nokkurn ára skeið við ýmis verkamannastörf samhliða því að vera æskulýðsleiðtogi í Hvítasunnukirkjunni á Akureyri. Árið 1997 hóf hann stöf sem tæknimaður hjá svæðisútvarpi Rúv á Akureyri.Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur haustið 1998 og hélt Ólafur áfram störfum hjá Rúv í Reykjavík. Ólafur hefur alla tíð haft mikinn áhuga á hljóð og myndvinnslu og hefur m.a. tekið þátt í uppsetningu á nokkrum útvarpsstöðvum ásamt því að byggja upp sjónvarpsdeild Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu og Lindarinnar kristinnar fjölmiðlunar.Þau hjónin stóðu fyrir uppbyggingu á kristnu starfi á Akranesi í um 4 ára skeið. Í dag er þar starfræktur Hvítasunnusöfnuður og hefur kirkjan afnot af eigin húsnæði.

Árið 2001 tók Ólafur við æskulýðsstarfi Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu í Reykjavík, og hefur verið þar síðan. Það var svo haustið 2003 að tækifæri skapaðist fyrir stofnun Biblíuskólans Masters Commission á Íslandi, og hefur Ólafur verið ábyrgur fyrir skólanum frá fyrstu stundu þó svo að hann hafi ekki orðið skólastjóri fyrr en árið 2005

Ólafur hefur setið í stjórn Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu frá árinu 2003.

Kennslustjóri

Erdna VarðardóttirErdna R. Varðardóttir er gift Ólafi Zophoníassyni og eiga þau saman , 3 börn. Hún er menntuð matartæknir og hefur starfað í veitinga-geiranum lengst af m.a. sem stjórnandi og yfirmaður.

Erdna er alin upp á kristnu heimili og ákvað snemma að hún vildi gera Jesú að leiðtoga lífs síns. Erdna hefur verið ötul í kristnu starfi í mörg ár m.a. á sviði tónlistar, unglingastarfs og kvennastarfs. Hún hefur starfað með Gospelkór Fíladelfíu um margra ára skeið, verið viðriðin barna og æskulíýðsstarfi í 20 ár og starfaði með Aglow á Íslandi um tíma.
Það kom því ekki mjög á óvart þegar Guð fór að eiga við hana um að fara af stað með uppbyggilegt starf fyrir konur og stelpur. Erdna kynntist starfi JesúKvenna í Noregi árið 2004 og þá varð ekki aftur snúið. JesúKonur á Íslandi var málið og hóf hún það starf í Reykjavík haustið 2005 og leiðir það starf ennþá.

Haustið 2007 kom hún til starfa sem kennslustjóri MCI skólans á Íslandi, og má segja að það hafi verið eðlileg framþróun skólans, en Erdna hafði verið viðriðin skólann frá upphafi þar sem eginmaður hennar er einn af stofnendum hans.

 

 
 

 

 

 

Masters commission Iceland - Völvufell 11 - 111 Reykjavík - Ísland - Sími 577-1117